Hvað er hugarfrelsi?

Hugarfrelsi er leið til að kenna bönunum að nota einfaldar aðferðir til að efla sjálfsmynd og vellíðan.

Með Hugarfrelsi er átt við það frelsi sem hverjum manni er unnt að öðlast þegar hugurinn hefur ekki lengur neikvæð áhrif á daglegt líf. Frelsi frá áhyggjum, kvíða og ótta. Hugarfrelsi til þess að blómstra, frelsi til að nýta hæfileika sína sem best, frelsi til að velja hugsanir sínar sér og öðrum til gagns.