Foreldrafélagið Grágæs
Stjórn foreldrafélagsins skólaárið 2023-2024
Tölvupóstur: gragaesforeldrafelag@gmail.com
Erla Pálsdóttir, foreldri á Álhóli | Formaður |
Arna Íris Vilhjálmsdóttir foreldri á Álfhóli | Gjaldkeri |
Nína Sördal foreldri á Álfhóli | |
Ásgerður Ósk Hilmarsdóttir foreldri á Víghóli | |
Kolbrún Lilja Skúladóttir foreldri á Víghóli og Lynginu | |
Þórey Sif Brink foreldri á Þinghóli | |
Guðrún Hrönn Hilmarsdóttir foreldri á Hvammkoti | |
Sigríður Anna Ólafsdóttir foreldri á Álfhóli og Víghóli | |
Tengiliður leikskólans er Gunnhildur Brynjarsdóttir deildarstjóri á Víghól, netfangið hennar er: gunnhb@kopavogur.is |
Hlutverk trúnaðarmanns
Hlutverk trúnaðarmanns er að gæta hagsmuna foreldra og barna þeirra. Ef foreldrar vilja t.d. koma athugasemdum (jákvæðum eða neikvæðum) um starfsemi skólans á framfæri í trúnaði, er þeim bent á að senda trúnaðarmanni skilaboð á tölvunetfangið. Trúnaðarmaður metur svo, í samráði við foreldra, hver næstu skref skuli vera.
Lög og starfsreglur Foreldrafélagsins Grágæsar
1 gr. Félagið heitir „Foreldrafélagið Grágæs“ ( kt. 690595-2579) og í því eru foreldrar og forráðamenn barna í leikskólanum Læk, Dalsmára 21-25, Kópavogi.
2 gr. Tilgangur og markmið félagsins er að stuðla að auknu samstarfi foreldra og starfsmanna leikskólans, svo og samvinnu foreldra innbyrðis í því skyni að standa vörð um hagsmuni og velferð barnanna á leikskólanum.
3 gr. Dagskrá komandi vetrar skal stjórn móta á fyrsta fundi sínum eftir að hún kemur saman, eftir atvikum með hliðsjón af dagskrá fyrri ára.
4 gr. Stjórn foreldrafélagsins er kosin ár hvert á aðalfundi. Skal hún skipuð alls sjö fulltrúum. Leitast skal við að leikskóinn eigi einn fulltrúa í stjórn og hver deild innan skólans eigi einnig sinn fulltrúa. Fulltrúi leikskólans eru þó ekki kjörgengur til formanns. Stjórnarmenn sem eiga eitt barn í leikskólanum á síðasta leikskólaári skulu ekki heldur vera kjörgengir til formanns.
Kjörtímabil stjórnar er eitt ár í senn, talið frá aðalfundi til aðalfundar. Foreldrafélagið skiptir með sér verkum á fyrsta fundi sínum eftir aðalfund. Kjósa skal 1 formann, 1 varaformann, 1 trúnaðarmann, 1 gjaldkera og 1 ritara. Stjórn er ekki ákvörðunarhæf nema mættir séu a.m.k. 3 stjórnarmenn á fund og ræður meirihluti atkvæða mættra fundarmanna í öllum málum.
Ritari skal bókfæra allar meiriháttar ákvarðanir stjórnar.
Ekki er æskilegt að allir stjórnarmenn hætti störfum í einu. Stjórninni er heimilt að kveða til starfa nýjan stjórnarmann fari einhver stjórnarmanna útúr stjórninni, t.d. ef barn hans hættir á leikskólanum.
5 gr. Félagsgjöld, ákveðin á aðalfundi hverju sinni, skulu innheimt af stjórn félagsins tvisvar á ári, í mars/apríl og nóvember. Skal reikningsár foreldrafélagsins hefjast 1. október og ljúka 30. september ár hvert.
6 gr. Aðalfundur skal haldin ár hvert fyrir lok október. Boða skal til hans með auglýsingu með a.m.k. 10 daga fyrirvara og kynntur þar möguleiki á að koma á framfæri breytingu á lögum félagsins með tillögu til stjórnar.
7 gr. Tillögur að lagabreytingum skulu berast stjórn skriflega í síðasta lagi 5 dögum fyrir auglýstan aðalfund og skulu þær bornar upp á aðalfundi . Meirihluti greiddra atkvæða mættra aðalfundarmanna nægir til breytinga á lögum félagsins.
8 gr. Á hverjum aðalfundi skal kjósa einn skoðunarmann reikninga. Hann skal skoða og eftir atvikum samþykkja reikninga ársins frá gjaldkera, fyrir næsta aðalfund.
Lög þessi með til orðnum breytingum voru samþykkt á aðalfundi 8. febrúar 2022.