Lækur tilnefndur eTwinningskóli 2025 - 2026
Í apríl var Lækur ásamt 4 örðum skólum útnefndur eTwinningskóli fyrir tímabilið 2025-2026. Þessi viðurkenning er veitt þeim skólum sem skara fram úr í eTwinning-verkefnum og vinna markvisst að því að efla alþjóðlegt samstarf, stafræna færni, öryggi á netinu og faglega þróun starfsfólks - með virka þátttöku nemenda að leiðarljósi. Þeir skólar sem fengu líka viðurkenningu eru Stóru-Vogaskóli, Tækniskólinn, Selásskóli og Ingunnarskóli.