Útskrift elstu barna

Þann 31.maí útskrifuðust elstu börn leikskólans. Þessi dagur var hátíðlegur með fallegri útskift og börnin sungu fyrir foreldra sína. Síðan var boðið upp á útskriftarköku ásamt fleiru. Nú hefur þessi flotti útskriftarhópur haldið á vit ævintýranna í útiskólanum þar til leikskólinn fer í sumarfrí og svo tekur við nýr kafli hjá þeim í 1.bekk. Við óskum þeim góðs gengis í öllu því sem þau eiga eftir að gera í framtíðinni.