Leikskólinn Lækur 30 ára

Í dag var haldið upp á 30 ára afmæli leikskólans sem er 11. maí.

Dagurinn byrjaði á söngvasýningu með Leikhópnum Lottu í boði foreldrafélagsins. Eftir söngvasýninguna þá fóru allir inn að borða Dominos pizzu sem rann vel niður í mannskapinn. Seinnipartinn hittumst við öll á Lækjarvöllum og sungum saman nokkur lög og svo var opið hús með afmælisköku, kleinu og fleira hnossgæti. Við þökkum þeim sem sáu sér fært að mæta innilega fyrir komuna.
Til hamingju með afmælið Lækur
Fréttamynd - Leikskólinn Lækur 30 ára Fréttamynd - Leikskólinn Lækur 30 ára Fréttamynd - Leikskólinn Lækur 30 ára Fréttamynd - Leikskólinn Lækur 30 ára Fréttamynd - Leikskólinn Lækur 30 ára

Smellið á myndir til að sjá þær í stærri upplausn