Sumarhátíð
Allar deildir leikskólans fóru í skrúðgöngu. Litli Lækur gekk í kringum Lækjavelli og Stóri Lækur gekk meðfram Lækjasmáranum. Eftir skrúðgönguna voru ýmsar stöðvar og leikir í boði á leikskólalóðinni. Tveir ávextir úr leiksýningunni Ávaxtakörfunni komu síðan í lok dagsins og skemmtu börnum og starfsfólki í boði foreldrafélagsins.